Megintilgangur Veðurstofu Íslands er að "auka öryggi og hagkvæmni í rekstri samfélagsins með því að vakta, greina, upplýsa, rannsaka, veita ráðgjöf og spá fyrir um hegðan náttúrunnar og náttúruvá" og "tryggja söfnun og vörslu gagna og þekkingar um langtímaþróun veðurfars og annarra umhverfisþátta sem eru á forræði stofnunarinnar".

Um gögn sem birt eru á vefsíðum Veðurstofunnar gildir að þau eru til frjálsra afnota nema annað sé tekið fram, enda sé uppruna gagna getið ef þau eru birt eða notuð af öðrum til útgáfu eða framsetningar. Þetta á einnig við um myndræna framsetningu ofangreindra gagna. Afnotaréttur gagna er ekki takmarkaður hvorki til einkanota né í viðskiptalegum tilgangi nema þess sé sérstaklega getið.

  • Veðurathuganir og spár eru aðgengileg í gegnum XML vefþjónustu. Gögn er hægt að fá á XML, RSS eða CSV sniði. Aðgangur að henni er nú ókeypis.
    • Eldri veðurathuganir frá Veðurstofu Íslands má nálgast á Gagnatorgi Veðurupplýsinga sem unnið var af fyrirtækjunum DataMarket og Reiknistofu í Veðurfræði.
  • Veðurathuganir er einnig hægt að fá í gegnum ókeypis i-rammaþjónustu. Útfærðir hafa verið tveir mismunandi i-rammar, annars vegar fyrir staðaspár, textaspár og veðurathuganir og hins vegar fyrir veðurþáttaspár (vinda-, hita- og úrkomuspár). Í báðum tilfellum er hægt að velja veðurspásvæði og tungumál (íslensku eða ensku). Báðir þessir i-rammar eru stórir og er ætlað að vera meginefni heillar síðu.
  • Jarðskjálftar
  • Eldgos: Listi yfir eldgos á 20. og 21. öld
  • Mælingar á mengun í andrúmslofti má sjá í gröfum, en mæligildi er ekki að finna á vefnum.
  • Listi yfir veðurstöðvar, með allskyns ítarupplýsingum s.s. hnattstöðu, hæð yfir sjávarmáli o.fl.
  • Hafístilkynningar Tilkynningar frá sjófarendum og athuganir úr landi á hafís allt frá 1982 (frá 1998 aðgengilegt á vefnum).
  • Ofanflóð eru skráð hjá Veðurstofunni og í ýmsum heimildum er talað um ofanflóðagagnasafn sem þó virðist ekki aðgengilegt á vef. Í því er að finna upplýsingar um stað, tíma, tegund &! 64258;óðs, veðuraðdraganda, slys, tjón, upptök, stöðvunarstað og margt annað sem skráð hefur verið um snjó&64258;óð og skriðuföll á landinu.