Hlutverk Umhverfisstofnunar er að stuðla að velferð almennings með því að beita sér fyrir heilnæmu umhverfi, öruggum neysluvörum og verndun og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda.

  • Loftgæði: Birtir í gagnvirku við móti loftgæðamælingar (svifrik og aðskotaefni) fyrir tvær mælistöðvar í Reykjavík. Loftmælingar eru einnig framkvæmdar á Akureyri, Mývatni, Alviðru, Grundartanga, Akranesi, Reyðarholti og Hafnarfirði. Mælingar í Reykjavík ná aftur til 1994.
  • Þjóðgarðar:
  • Í Náttúruminjaskrá eru upplýsingar um friðlýstar náttúruminjar.
  • Í skýrslunni Gagnagrunnar á Íslandi um náttúru, umhverfi, og orku er að auki að finna upplýsingar um eftirfarandi gagnasöfn á vegum stofnunarinnar:
    • Hreindýraveiði: Grunnur um veiði á hreindýrum. Upplýsingar um veiði á hreindýrum frá 1992 (kyn, aldur, veiðisvæði, fallþungi o.s.frv.), 25 breytur alls, öll veidd hreindýr. (bls. 57)
    • Refa- og minkaveiði: Refa og minkaveiði sveitarfélaga 1996-2006, 45 breytur. (bls. 57)
    • Veiðitölur spendýra og fugla: Veiði- og sóknartölur fyrir spendýra- og fuglaveiðar á Íslandi 1995-2006. Veiðitölur 1995-2006. Breyturnar eru 235 og árlega koma inn gögn frá 11.000-13.000 einstaklingum. (bls. 58)
    • Haf og ár: Mæliniðurstöður úr mælingum á efnainnihaldi, gerlainnihaldi og þungmálmum auk magns þrávirkra og geislavirkra efna. Einnig er árlega tekið saman varp efna í haf. (bls. 62)
    • Laugar og baðvatn: Gagnagrunnur um gerla sem eru mældir í baðvatni og náttúrulaugum. (bls. 62)
    • Vatnsgæði: Gagnagrunnur með niðurstöðum mælinga á neysluvatni, þ.e.a.s. fitumælingar, radoninnihald, nítrat í grunnvatni, efnamælingar á sigvatni, gerlamælingar, veirurannsóknir, sýrustig, leiðni o.fl. (bls. 62)
    • Losun gróðurhúsalofttegunda: Samantekt er gerð árlega yfir heildarlosun Íslands á gróðurhúsalofttegundum. Losunin er sundurgreind eftir einstökum greinum innan samfélagsins og eru helstu flokkarnir: losun frá orkuiðnaði, iðnfyrirtækjum, notkun leysiefna, landbúnaði, landnotkun og jarðhitavirkjunum. Fyrir hvern flokk er skráð losun helstu gróðurhúsalofttegunda auk nokkurra annarra efnasambanda. (bls. 67)
    • Ósoneyðandi efni: Skrá yfir innflutning á ósoneyðandi efnum. (bls. 68)
    • Skólp: Skrá er haldið saman um skólphreinsun sveitarfélaga. (bls. 68)
    • Sorp: Magn sorps sem fellur til á landinu árlega er tekið saman, m.a. er áætlað magn iðnaðarsorps og heimilissorps. (bls. 68)
    • Eitur- og varnarefni: Skrá um leyfisveitingar fyrir notkun á eitur- og varnarefnum auk þess að haldið er utan um sölu efnanna. (bls. 68)
    • Þrávirk efni í umhverfi: Niðurstöður mælinga á samnorrænum rannsóknum á þrávirkum efnum í umhverfinu. (bls. 69)