Umferðarstofa sér um skráningu á margvíslegum umferðartengdum gögnum, þ.á.m. ökutækja- og slysaskráningu.
Tölfræði Umferðarstofu er unnin upp úr ökutækjaskrá daglega og sett á vef stofnunarinnar. Þar má m.a. finna upplýsingar um fjölda skráninga, eigendaskipta, aldur bílaflotans o.m.fl.
Hægt er að fá aðgang að ökutækjaskrá gegn gjaldi. Greiddar eru kr. 250.000 í stofngjald, þar af eru kr. 200.000 fyrirframgreidd viðskipti. Verð á hverja flettingu í ökutækjaskrá (eftir ökutæki) kostar 14 krónur, en svarskeytið inniheldur flestar upplýsingar tengdar ökutækinu sem vistaðar eru í grunnum Umferðarstofu.
Nokkrir aðilar áframselja gögn úr ökutækjaskrá, tæmandi listi yfir alla aðila er að finna á vef Umferðarstofu