Meginhlutverk Ríkisendurskoðunar er að endurskoða ríkisreikning og reikninga þeirra stofnana og fyrirtækja sem hafa með höndum rekstur eða fjárvörslu á vegum ríkisins, eru rekin á ábyrgð ríkissjóðs eða ríkissjóður á að hálfu eða meira. Í þessu sambandi leggur hún einnig mat á það hvort innra eftirlit stofnana og fyrirtækja sé fullnægjandi. Ríkisendurskoðun hefur auk þess eftirlit með framkvæmd fjárlaga og er þingnefndum til aðstoðar við störf sem varða fjárhagsmálefni ríkisins. Þá er henni ætlað að endurskoða stjórnsýslu ríkisins og meta hvort hagkvæmni og skilvirkni sé gætt í rekstri ríkisstofnana og fyrirtækja og hvort þau fylgi gildandi lagafyrirmælum í þessu sambandi. Að lokum getur stofnunin kannað hvernig stjórnvöld framfylgja áætlunum, lagafyrirmælum og skuldbindingum á sviði umhverfismála.

  • Skýrslur Ríkisendurskoðunar: Þessi hlekkur bendir á útgefnar skýrslur Ríkisendurskoðunar frá árinu 1988 til dagsins í dag (raðað eftir málaflokkum). Á síðu Ríkisendurskoðunar er leitarvél sem leitar í fréttum og skýrslum stofnunarinnar.