Náttúrufræðistofnun
- Plöntuvefsjá birtir upplýsingar um útbreiðslu háplantna, mosa, fléttna, sveppa og þörunga á Íslandi á myndrænan hátt í kortaham.
- Válistar yfir lífverutegundir sem eiga undir högg að sækja eða eru taldar vera í útrýmingar hættu hér á landi.
- Skrá yfir villtar blómplöntur og byrkninga á Íslandi
- Jaspis: Gagnagrunnur um berg og steindir (steina).Venslagrunnur um steina, fundarstaði þeirra (GPS-jarðhnit) og safneintök í vísindasöfnum. (sjá uppl. á bls 12 í skýrslunni Gagnagrunnar á Íslandi um náttúru, umhverfi, og orku)
- Flóra Íslands: Grunnur að heildargagnagrunni um tegundir í flóru Íslands.
- Upplýsingar um eftirfarandi gagnagrunna má einnig finna í skýrslunni Gagnagrunnar á Íslandi um náttúru, umhverfi, og orku
- Steingervingar: Gagnagrunnur um safneintök í vísindasafni NÍ, fundarstaði þeirra (GPS-jarðhnit að hluta), gerð þeirra, tegundarheiti eða ættkvíslarheiti, flokkunarkerfi, fundarstaði og jarðmyndun, jarðsögulegan aldur, finnanda / gefanda eintaksins og hvenær safninu barst það svo og ritheimildir hafi safneintakinu verið lýst. (bls. 13)
- Jarðfræðikort: Upplýsingar um jarðlög, aldur þeirra og tegund, um innskot, legu þeirra og tegund, halla jarðlaga, jarðhita, eldvörp og höggun, stefna jökulráka og lega jökulgarða, staðsetning fundarstaða steingervinga. (bls. 20)
- Flygill: Gagnagrunnur um fuglamerkingar og endurheimtur þeirra. Heildarfjöldi skráninga er um 210.000. Elstu merkingafærslur eru frá árinu 1905 og þær yngstu 2007. (bls. 34)
- Hryggdýr: Inniheldur upplýsingar um allar tegundir og fundarstaði (GPS-jarðhnit að hluta) villtra hryggdýra á Íslandi: fugla, spendýra og fiska. (bls. 35)
- Landhryggleysingjar: Venslagrunnur um tegundir landhryggleysingja, fundarstaði þeirra (GPS-jarðhnit) og safneintök í vísindasöfnum. (bls. 36)
- Sjávarhryggleysingjar: Venslagrunnur um tegundir sjávarhryggleysingja, fundarstaði þeirra (GPS-jarðhnit) og safneintök í vísindasöfnum.