• Upplýsingar um næringargildi algengra matvæla - ÍSGEM á PDF formi. Gögnin eru úr íslenka gagnagrunninum um efnainnihald matvæla (ÍSGEM) en Matís sér um rekstur hans í samstarfi við Manneldisráð Íslands (Lýðheilsustöð). Notkunarskilmálar óljósir
  • Í skýrslunni Gagnagrunnar á Íslandi um náttúru, umhverfi, og orku er að finna upplýsingar um eftirfarandi grunna stofnunarinnar:
    • Foxpro: Í grunninum má finna niðurstöður frá örveru- og efnamælingum í matvælasýnum, baðvatni, neysluvatn og umhverfissýnum (árvatn og sjór). Upplýsingarnar ná a.m.k. aftur til ársins 1997. (bls. 61)
    • Aðskotaefni í sjávarafurðum: Markmið grunnsins er að halda utan um tölur yfir styrk aðskotaefna í íslenskum sjávarfangi. Með því má hafa áhrif á ESB reglugerðir varðandi leyfðan styrk aðskotaefna í sjávarfangi. Unnt er að meta áhættuna samfara neyslu íslensk sjávarfangs og upplýsa stjórnvöld og söluaðila sjávarfangs um hvernig afurðir standast mörk sem þegar eru í gildi á Íslandi og hjá viðskiptaþjóðum Íslendinga. Í grunninum má finna mælingar á magni þungmálma, PCB, díoxín og pláguefna í fiski, humri, rækju, hörpudiski, fiskimjöli og lýsi. Grunnurinn spannar 3 ár (2003-2005) og í honum eru um 500 sýni. (bls. 63)
    • Efni og örverur í fiski: Allar niðurstöður fengnar úr efna- og örverumælingum sem framkvæmdar hafa verið hjá þjónustusviði Rf frá 1999 til loka árs 2006 til í gagnagrunni Navís, en sérstakt sýnamóttökukerfi var hannað í því kerfi. Niðurstöður frá 1999 til 2006. (bls. 64)
    • Matvæli: Safnað er saman upplýsingum um fæðubótaefni, efni til gerileyðingar, niðurstöður gerlamælinga og ýmis varnarefni.