Meðal helstu verkefna safnsins eru að veita almenningi og fræðimönnum leiðsögn og aðgengi að margvíslegum upplýsingum. Safnið safnar, varðveitir og veitir aðgang að öllu íslensku efni, fræðiritum og námsbókum. kortum, handritum og bréfasöfnum auk hljóðrita og kvikmynda.
Hér er listi yfir það helsta sem Landsbókasafn heldur utanum. Þó gögnin séu aðgengileg á netinu eru þau sjaldnast opin svo hægt sé að sækja þau eða byggja ofan á þau með nokkrum hætti.
Doktorsritgerðaskrá Landsbókasafn safnar doktorsritgerðum Íslendinga eftir því sem unnt er en skráin er ekki tæmandi. Tilgangurinn með því að birta skrána í rafrænu formi er að veita upplýsingar um doktorsverkefni Íslendinga fyrr og síðar en einnig að styðja við söfnun þessa efnis.
Forn Íslandskort Á kortavef safnsins er að finna myndir og upplýsingar af Íslandskortum frá 16. öld til 19. aldar. Á vefnum er einnig að finna ítarlega umfjöllun um sögu kortagerðar af Íslandi.
Gegnir Gegnir er bókasafnskerfi sem hýsir samskrá íslenskra bókasafna. Kerfið veitir aðgang að upplýsingum um safnkost flestra bókasafna landsins, t.d. háskólasafna, almenningssafna, sérfræðisafna og skólasafna.
Sagnanetið Sagnanetið veitir aðgang að stafrænum myndum af u.þ.b.240.000 blaðsíðum íslenskra handrita og um 153.000 blaðsíðum prentaðra rita. Hægt er að leita eftir titlum, upphafsorðum eða gerð.
Skemman.is Skemman er rafrænt gagnasafn Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Bifröst og Listaháskóla Íslands. Í safninu eru geymd lokaverkefni nemenda og rannsóknarrit starfsmanna.
Tímarit.is Á Tímarit.is er hægt að nálgast myndaðar síður íslenskra, færeyskra og grænlenskra dagblaða og tímarita frá upphafi tímaritaútgáfu til dagsins í dag. Hægt er að leita í þeim hluta sem hefur verið ljóslesinn.
Vefsafnið Vefsafnið er safn vefsíðna af þjóðarléninu .is og nokkurra íslenskra vefsíðna af öðrum lénum. Á vefsafninu er hægt að skoða hvernig íslenskir vefir hafa litið út aftur til ársins 2004.
Íslensk útgáfuskrá Íslensk útgáfuskrá er tilraunaverkefni Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns. Skráin nær yfir efni útgefið á Íslandi. Þar er meðal annars hægt að nálgast tölfræði yfir íslenska útgáfu eftir ýmsum skilyrðum.
Miðstöð munnlegrar sögu Safnar miklu magni af hljóði úr viðtölum og víðar. Ekkert af hljóðunum er aðgengilegt á netinu.