Markmið Landmælinga Íslands er að tryggja að ávallt séu til aðgengilegar og áreiðanlegar staðfræðilegar og landfræðilegar grunnupplýsingar um allt Ísland. Fyrirtækið hefur yfir að ráða fjölmörgum gagnagrunnum sem flestir hverjir eru háðir gjaldtöku og margvíslegum hindrunum á nýtingu og endurbirtingu.
Athygli vekur að tekjur stofnunarinar af þessum birtingargjöldum eru aðeins 15 milljónir króna (2007), en hún þiggur 212 milljón króna ríkisframlag til að mæta rekstrarkostnaði. Færa mætti rök fyrir því að þjóðarhagur af gjaldfrjálsu og opnara aðgengi að þesum gögnum væri mun meiri en þessar birtingatekjur.