Landbúnaðarstofnun
- Upplýsingar um eftirfarandi gagnagrunna stofnunarinnar er að finna í skýrslunni Gagnagrunnar á Íslandi um náttúru, umhverfi, og orku:
- Áburður: Gögn um áburð, innflutning og framleiðslu áburðar, flokkun áburðar og fyrir hvers konar ræktun áburðurinn er notuð. Grunnurinn var byggður 1999 og hefur verið notaður síðan vegna eftirlits með áburði. Í grunninn eru skráðar 596 áburðartegundir á 75 fyrirtæki, 60-210 innflutningsafgreiðslur á ári, auk upplýsinga um efnainnihald og gerð áburðar. (bls. 54)
- Efnagreining: Gögn um efnagreiningu á fóðri, næringarefni, óæskileg efni og þungmálma. Grunnurinn var byggður 2002 og hefur verið notaður síðan vegna eftirlits með fóðri. Í grunninn eru skráðar 445 fóðursýni og niðurstöður efnamælinga á þeim. (bls. 55)
- Fóður: Gögn um fóður, innflutning og framleiðslu fóðurs, flokkun fóðurs og fyrir hvaða skepnur fóðrið er notað. Grunnurinn var byggður 1997 og hefur verið notaður síðan vegna eftirlits með fóðri. Í grunninn eru skráðar 1477 fóðurtegundir á 234 fyrirtæki, 614 – 1060 innflutningsafgreiðslur á ári auk upplýsinga um viðurkennd fyrirtæki og eftirlit með þeim. (bls. 55)
- Sáðvara: Gögn um sáðvöru, innflutning og framleiðslu sáðvöru, flokkun sáðvöru og fyrir hvers konar ræktun sáðvaran er notuð. Grunnurinn var byggður 1999 og hefur verið notaður síðan vegna eftirlits með fóðri. Í grunninn eru skráðar 116 sáðvörutegundir á 102 fyrirtæki, 50-180 innflutningsafgreiðslur á ári, auk upplýsinga um hreinleika og spírunarhæfni innfluttrar sáðvöru. (bls. 56)
- Salmonella: Skráning Salmonellutilfella á árunum 2002 – 2006. Hver skráning nær yfir eitt ár. Um er að ræða yfirlit yfir sýnatökur vegna Salmonella í svínum. Sýnin eru tekin á svínabúunum og í sláturhúsum. Grunnurinn spannar 5 ár. Upplýsingar eru um dags. Sýnatöku, hverskonar sýni, hvaðan sýnið er, fjölda sýna, sláturhúsið, rannsóknarstofu, niðurstöður og athugasemdir. (bls. 66)