• Lögbirtingablaðið: "Í Lögbirtingablaði skal birta dómsmálaauglýsingar, svo sem stefnur til dóms, úrskurði um töku búa til opinberra skipta og áskoranir um kröfulýsingar, auglýsingar um skiptafundi og skiptalok þrotabúa, nauðungarsölur, þar á meðal á fasteignum búa sem eru til opinberra skipta, auglýsingar um vogrek, óskilafé og fundið fé, auglýsingar um kaupmála hjóna, lögræðissviptingu og brottfall hennar, lögboðnar auglýsingar um félög og firmu, sérleyfi er stjórnvöld veita, opinber verðlagsákvæði og annað það er stjórnvöldum þykir rétt að birta almenningi."

Á vefsvæði Lögbirtingablaðsins er farið með viðkvæmar persónuupplýsingar. Vegna persónuverndarsjónarmiða er (ókeypis) "áskriftar" krafist að vefsvæðinu og leitarvél þess.

Jafnframt er hægt að nálgast útgáfu Lögbirtingablaðsins á PDF sniði án sérstakrar áskriftar/auðkenningar. (PDF útgáfuna má finna undir tenglinum "Prentuð útgáfa" efst til hægri á vefnum.)

Á síðunni kemur fram að <q>"Áskrift að rafrænni útgáfu Lögbirtingablaðsins er gjaldfrjáls fram til 1. janúar 2006"</q>. (þann 11. sept. 2008.)