Hirsla, vísinda- og fræðsluefnissafn Landspítalans (www.hirsla.lsh.is)

Hirsla er rafrænt varðveislusafn, sérhannað til að vista, varðveita og miðla því vísinda- og fræðsluefni sem starfsmenn spítalans hafa gefið út samhliða vinnu sinni eða námi við spítalann.

Markmið Hirslunnar eru að auðvelda starfsmönnum Landspítalans

• að vista varanlega rafræn handrit (greinar)

• að fá betra yfirlit yfir eigin skrif (greinar) og umsýslu þeirra

• að stækka sinn lesendahóp

• að hraða birtingu rannsóknaniðurstaðna

• að fjölga tilvísunum í eigin verk (hærri “citation impact”)

• að auka sýnileika í rannsóknum, sem auðveldar aðgengi að samstarfsverkefnum og styrkjum

• að uppfylla kröfur fjölmargra styrkveitenda, sem krefjast þess að afrakstri rannsókna sem styrktar hafa verið sé miðlað í opnum aðgangi.

Hirslan tryggir jafnframt, sýnileika greina og einfaldara aðgengi lesanda þeirra, óháð landamærum, stað og stund m.a. vegna opins aðgangs og sjálfvirkrar lyklunar leitarvéla (Google, Yahoo)

Auk vísindagreina varðveitir Hirsla fræðslugreinar úr fjölmörgum íslenskum heilbrigðistímaritum