Hreyfing þeirra sem sjá kosti þess að opna gögn og veita greiðan aðgang að þeim er sterk víða um heim. Þegar opnum gögnum úr ýmsum áttum er blandað saman verður lokaniðurstaðan jafnan betri og verðmætari en summa frumgagnanna. Möguleikarnir eru óþrjótandi.

Hér eru nokkur dæmi og tenglar til innblásturs.

  • Stofnun Árna Magnússonar opnaði árið 2009 upp Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (þó gögnin séu nokkrum takmörkunum háð). Í framhaldinu var haldin samkeppnin Þú átt orðið þar sem verðlaun voru veitt fyrir skemmtilega notkun á gagnasafninu. Verkefni sem er til fyrirmyndar.
  • Ástralska ríkið hélt fyrir nokkru keppnina Mashup Australia þar sem margvísleg gögn opinberra aðila voru fyrst opnuð og svo haldin keppni um frumlegustu og best útfærðu vefina sem tóku gögn úr ýmsum áttum og settu saman á hátt sem var notendavænn og nytsamur.
  • Breska ríkið hefur tekið sér tak og opnað vefinn Data.gov.uk. Þar er að finna yfirlit yfir þau gögn sem opinberir aðilar hafa opnað og hvatt til frumlegrar notkunar á gögnunum.
  • Tim Berners-Lee hélt áhugaverða ræðu hjá TED-samtökunum í febrúar 2010 og útskýrði kraftinn sem brýst úr hráum gögnum þegar þau eru opnuð almenningi til að leika sér með.
  • Vefurinn ProgrammableWeb heldur utan um API staðla, aðgengi að ýmsum gögnum og hvernig gagnalindum hefur verið skeytt saman.