Meðal gagnasafna Bændasamtaka Íslands eru:

  • WorldFengur er upprunaættbók íslenska hestsins. WorldFengur safnar saman upplýsingum um íslenska hesta innan landa FEIF (Félag eigenda íslenskra hesta erlendis) og eru þær aðgengilegar á vefnum. WorldFengur er samstarfsverkefni Bændasamtaka Íslands og FEIF um að þróa einn og viðurkenndan miðlægan gagnagrunn um íslenska hestinn hvar sem er í heiminum. Í WorldFeng er að finna viðamiklar upplýsingar um á þriðja hundrað þúsund íslenskra hesta og eykst fjöldi þeirra á hverjum degi. Mætti t.d. finna upplýsingar um ættartölu, afkvæmi, kynbótadóma, eigendur, ræktendur, kynbótamat, liti, örmerki og fleira. Einnig hefur WorldFengur að geyma um 5.000 myndir af kynbótahrossum. Með einum smelli á viðeigandi þjóðfána undir "Subscribe" getur þú orðið áskrifandi að WorldFeng sem opnar þér nýjar víddir í upplýsingaleit þinni. Ársáskrift kostar 5.500 kr. með 150 heimsóknum (aðeins 458 kr. á mánuði). Einnig er hægt að kaupa ársáskrift með 300 heimsóknum á 7.800 kr.
  • Mark heldur utan um einstaklingsmerkingar búfjár. Allir bændur í sauðfjár-, nautgripa- og svínarækt geta fengið aðgang að MARK. Með aðgangi að MARK geta bændur pantað viðurkennd plötumerki frá embætti yfirdýralæknis. Nautgripabændur geta jafnframt nýskráð gripi, skráð burð og flutningssögu gripa. Megin hlutverk einstaklingsmerkingar er að tryggja rekjanleika búfjárafurða frá upprunahjörð og/eða fæðingu viðkomandi dýrs til sölu afurða, og grundvöll að markvissu matvæla- og búfjáreftirliti, eftirliti með flutningum dýra, skráningu búfjársjúkdóma og meðhöndlun þeirra.
  • Fjárvís Heildstætt upplýsingakerfi um sauðfé á Íslandi. Snýr að skýrsluhaldi í sauðfjárrækt og var opnað árið 2006.
  • Huppa Heildstætt upplýsingakerfi um nautgripi á Íslandi, afurða- og skýrsluhaldskerfi í nautgriparækt og var opnað árið 2008.
  • Jörð var opnað fyrir bændur í mars 2009 og er skýrsluhaldskerfi í jarðrækt. Með Jörð.is geta bændur m.a. gert áburðaráætlanir á grunni áburðarþarfar og ákveðnna skilyrða, og borið síðan saman áætlanir með tilliti til áburðarverðs. Aðgangur að Jörð.is verður fyrst um sinn bændum að kostnaðarlausu og eru bændur hvattir til að kynna sér möguleika þess í eigin jarðrækt.
  • Forðagæsla: Upplýsingar um búfjáreign og fóðurforða landsmanna. Upplýsingar um búfjáreign og fóðurforða landsmanna 1981-2006. Breytur eru 95, einstaklingar u.þ.b. 5.500-6.500 árlega.