Í Þjóðskrá eru færðar breytingar sem verða á högum manna s.s. fæðingar, nafngjafir, breytingar á hjúskaparstöðu, flutningar, andlát o.þ.h. Tekið er við tilkynningum fólks um búferlaflutninga, innanlands og milli landa, nafnagjafir barna og stofnun sambúðar. Ýmiss vottorð eru gefin út hjá Þjóðskrá s.s. fæðingarvottorð, vottorð um hjúskaparstöðu, sambúðarskráningu, búsetu og staðfestingu á dánardegi.

Hægt er að leita í þjóðskrá á mörgum aðgangsstýrðum vefsvæðum, t.d. öllum heimabönkum. , enda kveða skilmálar um aðgengi að þjóðskrá á um slíka stýringu vegna persónuverndarsjónarmiða. Sjá upplýsingar um fyrirtækjaskrá undir: Ríkisskattstjóri

Hægt er að kaupa uppfærslur af gögnum þjóðskrár í heild sinni í gegnum þar til bæra miðlara.

Nánar um aðgang að Þjóðskrá á vef þeirra.