Hlutverk Þjóðskjalasafns er ekki síst að tryggja öryggi þegnanna með því að geyma á tryggan hátt mikilvæg gögn sem snerta réttindi ríkis, sveitarfélaga, og þegna landsins. Oftast er um að ræða gögn sem hafa mikið réttarfarslegt gildi auk þess að vera mikilvægar sögulegar heimildir. Íslenskt samfélag hefur tekið gagngerum breytingum á þessari öld. Það leiðir hugann að því hversu mikilvægt það er að vanda til varðveislu þeirra heimilda sem 20. öldin hefur myndað.

Þjóðskjalasafnið hefur unnið nokkuð starf í því að koma eldri gögnum á stafrænt form, auk þess sem móttaka og varðveisla stafrænna gagna heyrir í auknum mæli undir starfsemi stofnunarinnar.