Íslandspóstur hefur yfir að ráða eftirtöldum gögnum:
- Póstnúmera- og götuskrár: Listi yfir öll póstnúmer og götuheiti á Íslandi. Götuheitaskráin inniheldur m.a. póstnúmer götunnar og beygingu götuheitisins í nefnifalli og þágufalli. Gögnin eru fáanleg á XML og CSV (kommaskilið snið sem m.a. hentar Excel). Leyfð er ótakmörkuð gjaldfrjáls notkun á skránum bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Skv. skilmálum póstsins má fella skrárnar inn í tölvukerfi til að stuðla að réttri skráningu á póstnúmerum, götum og bæjarnöfnum fyrir póstáritanir og heimilisföng en óheimilt er að setja skrárnar beint upp á eigin vefsíðu til dreifingar.